Valmynd

| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
Fyrirtækið var stofnað árið 1994 af þeim Arnóri Stefánssyni og Önnu Ingvarsdóttur. Frá upphafi hefur Dímon einbeitt sér að sölu veiðarfæra öðrum en togveiðarfærum.
Fyrirtækið hefur verið mjög öflugt á markaði fyrir línu og króka. Einnig er sterk staða í netum og tengdum vörum.
Árið 2000 hófst innflutningur á beitu og í dag flytur Dímon inn mikið magn af Smokkfisk og Sandsíli ásamt því að vera með Síld og Makríl.
Fyrstu árin byggðist reksturinn á innflutningi og sölu á vörum annara framleiðenda en í dag hefur Dímon fært sig meira í átt að eigin framleiðslu og er ásamt fleirum eigandi að Aðlöðun ehf sem hefur þróað pokabeitu sem er að koma á markað á Íslandi.
Einnig hefur verið fjárfest í erlendu fyrirtæki sem framleiðir allar gerðir af krókum. Framleiðsla þess er einnig að koma á markað á öllum markaðssvæðum Dímon.
Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 8-10 manns við sölu og framleiðslu.